Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hefur sent tilkynningu til bandarískra alríkisstofnana þar sem fram kemur að öll gervigreindartól sem þróuð hafa verið af kínverska tæknifyrirtækinu DeepSeek skuli fjarlægð úr tölvubúnaði stofnananna.Þess má geta að smáforrit DeepSeek, sem svipar til gervigreindarspjallmennisins ChatGPT, er eitt af mest sóttu forritunum á smáforritaverslun Apple, App Store.Skipunin nær eingöngu til borgaralegra stofnana en ekki er vitað hvort stofnanir á vegum hersins eða leyniþjónusta hafi fengið sambærilega tilskipun. KÍNVERSK STJÓRNVÖLD GETA NÁLGAST GÖGN Í tilkynningu heimavarnarráðuneytisins segir að áhætta fylgi því að nota lausnir DeepSeek þar sem það geti haft í för með sér yfirfærslu viðkvæmra gagna til kínverskra stjórnvalda.Það sé ekki síst vegna þess að netþ