Útsendingar eystra hljóðna um stund

Útsendingar Rásar 1 og Rásar 2 um loftnet falla niður á hluta Austurlands og Austfjarða um stund upp úr klukkan ellefu. Það gerðist meðan Rarik skiptir út mæli á Gagnheiði. Skiptin hafa áhrif á 14 endurvarpa.Útsending um loftnet getur þagnað í allt að 20 mínútur frá klukkan 11:15.Útsendingar detta út frá Breiðdalsvík að Borgarfirði-eystri og langleiðina að Mývatni. Reyðarfjörður og Neskaupstaður detta ekki út.Hægt verður að hlusta á útsendingu beggja rása í Spilaranum á RÚV.is og í smáforriti RÚV. Hér má nálgast útsendingu Rásar 1 og hér útsendingu Rásar 2.
Útsendingar eystra hljóðna um stund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd