„Bylting!“ hrópuðu sumir þátttakendur í mótmælunum í Frakklandi. Aðrir kröfðust betri aðbúnaðar í skólum. Margir vildu einfaldlega að heimilisfjárhagurinn hætti að versna vegna hækkandi eldsneytis- og matvælaverðs. Sumir virtust hins vegar sækjast eftir átökum. Grímuklædd ungmenni tókust á við lögreglu og nýttu sér upplausnarástandið til að ræna dýrum íþróttaskóm og sjónvarpstækjum úr verslunum í borgum landsins. Óeirðirnar hafa dregið fram...