Leikskóli opnar aftur á Drangsnesi

Leikskóli hefur opnað aftur á Drangsnesi eftir sjö ára hlé. Þrjú börn eru í aðlögun á leikskóladeildinni sem er í húsnæði Grunnskólans á Drangsnesi.Í Kaldrananeshreppi eru átta börn undir sex ára aldri og Finnur Ólafsson, oddviti í Kaldrananeshreppi, segir opnun leikskóladeildarinnar svar við óskum foreldra.Börnin þurftu áður að sækja leikskóla á Hólmavík sem er hálftíma akstur hvora leið.Grunnskólanemendur sækja nám á Hólmavík í vetur fyrir utan list- og verkgreinakennslu sem fer fram á Drangsnesi. Samstarfið er tilraun þar sem á Hólmavík skortir húsnæði en á Drangsnesi vantar kennaramenntað starfsfólk í vetur.Kaldrananeshreppur
Leikskóli opnar aftur á Drangsnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd