Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir embætti landlæknis nú vinna að því að endurmeta fyrirkomulag bólusetninga vegna RS-veiru næstu árin. Virkni bóluefnisins dvíni eftir um fimm til sex mánuði og því sé best að gefa það meðan á faraldri stendur eða í aðdraganda hans. Markhópurinn hafi verið skilgreindur með tilliti til þess og það sé ástæðan fyrir því að aprílbörn hafi ekki fengið bóluefnið. Foreldrar þeirra hafa gagnrýnt fyrirkomulagið.