Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, og Steve Witkoff, sendifulltrúi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hittast á fundi með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Alexander Stubb, forseta Finnlands. Jared Kushner, sendifulltrúi og tengdasonur Trumps, tekur þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.Fundurinn er haldinn í Ósló og fer fram að beiðni Zelenskys. Hann bað norska og finnska ráðamenn um að koma á fundi með fulltrúum Trumps, að því er Støre greindi frá í morgun.Norska ríkisútvarpið NRK hefur eftir Hanne Eggen Røislien, rannsakanda við varnarmálaskóla Noregs, að fundurinn sé mikilvægt skref á tíma þegar komið sé að krossgötum í stríðinu í Úkraínu. Hilmar Mjelde, prófessor við háskólann í Vestlandet, segir að fundurinn sé tilraun til að bæta samskipti Trumps og Zelenskys. Hann he