Brikk í Hafnarfirði lokað eftir að eldur kom upp í gær

Eldur kviknaði í potti í bakaríi Brikk á Norðurbakka í Hafnarfirði. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna eldsins undir kvöld í gær. Slökkvistarf gekk vel.Bakaríið verður lokað um óákveðinn tíma að því er segir í færslu á samfélagsmiðlum fyrirtækisins. „Brikk fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki á Norðurbakkanum í kvöld. Í ljósi aðstæðna verður Brikk á Norðurbakka því miður lokað í óákveðinn tíma.“
Brikk í Hafnarfirði lokað eftir að eldur kom upp í gær

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd