Mótmælin í Frakklandi hafa verið fyrirferðamikil í umfjöllun fjölmiðla þar sem óeirðir, ofbeldi, gripdeildir og útgöngubann hafa sett svip sinn á mótmæli undangenginna daga.Víðar í Evrópu geisa þó mótmæli og rétt eins og í Frakklandi eru ungir námsmenn fremstir í fylkingu í flestum þeirra. 270 HANDTEKNIR Í MÍLANÓ Á Ítalíu hafa mótmæli farið fram síðustu daga en á föstudag gengu þúsundir námsmanna í gegnum Róm til að mótmæla stefnumálum stjórnvalda og háum framfærslukostnaði.Mótmælin héldu áfram í mörgum borgum Ítalíu yfir helgina, þar á meðal Mílanó, Bologna, Brescia, Bergamo og Túrín. Í nokkrum borgum hafa mótmælin snúist upp í óeirðir, ekki síst í Mílanó þar sem fleiri en 270 ungmenni hafa verið handtekin. Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu hefur boðað stjórnvöld á fund til að ræð