Ánægja með störf Trumps minnkar og mælist 31%

Ánægja með störf Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur hríðfallið og mælist nú 31%, sem er það lægsta í hans stjórnartíð. Reuters greinir frá.Minnkandi stuðningur er Repúblikönum áhyggjuefni í aðdraganda þingkosninga í Bandaríkjunum en stjórnmálaskýrendur telja kjósendur meðal annars refsa flokknum fyrir hátt olíuverð sem hefur komið illa niður á bandarískum kjósendum.68% þeirra segjast óánægðir með hvernig Trump hefur tekist til í efnahagsmálum en athygli vekur að meðal repúblikana segjast 37% óánægðir.Þá eru 50% kvenna ánægðar með demókrata en aðeins 32% þeirra segjast jákvæðari gagnvart repúblikönum.EPA / JIM LO SCALZO
Ánægja með störf Trumps minnkar og mælist 31%

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd