Aukin áhersla á öryggismál í nýrri norðurslóðastefnu Evrópusambandsins

Stefnuskjal Evrópusambandsins um norðurslóðir er í raun uppfærsla á stefnu sem gefin var út árið 2021. Skjalið sem kynnt verður í Strassborg í dag tekur mið af þeim breytingum sem orðið hafa síðan þá; nú er mun meiri áhersla á öryggis- og varnarmál.Í skjalinu, sem fréttastofa hefur undir höndum, kemur meðal annars fram að hornsteinninn í þessari stefnu sé dýpra og nánara samstarf Evrópusambandsins við Grænland. Auk þess er ætlunin að stórauka samstarf við Kanada; nánari útfærsla á því samstarfi kemur að líkindum í ljós á leiðtogafundi Evrópusambandsins og Kanada sem haldinn verður í lok þessa mánaðar.Einnig er rætt um leiðir til að auka eftirlit og öryggi með haf- og landssvæðum á Norðurslóðum, í samstarfi við NATO, og ríkin á þessu svæði, bæði utan og innan Evrópusambandsins, meðal annars
Aukin áhersla á öryggismál í nýrri norðurslóðastefnu Evrópusambandsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd