Næstum tvöfalt fleiri fá geðrofslyf nú en fyrir tíu árum. Aukningin er sérstaklega mikil meðal eldra fólks. Geðlæknir segir lyfið í vaxandi mæli notað við svefnleysi í stað hefðbundinna svefn- og róandi lyfja. Notkun geðrofslyfsins sé þó ekki samþykkt sem svefnlyf og rannsóknir á áhrifum þess, einkum hjá öldruðum, séu af skornum skammti.