Íbúar í Alberta hafa kosið með yfirgnæfandi meirihluta að þeir vilji áfram vera hluti af Kanada. 76% íbúa kusu gegn því að haldin yrði bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði frá Kanada.Í Alberta búa um fimm milljónir en margir þeirra sem styðja aðskilnað segja að umhverfisstefna kanadísku ríkisstjórnarinnar hafi hamlað efnahagsvexti í ríkinu. Alberta á um 98% af heildarolíuforða Kanada.Spár gerðu ráð fyrir þessari niðurstöðu en skoðanakannanir sýndu svipaða tölu, eða að meira en 76% íbúa væru á móti því að sækja um sjálfstæði.Atkvæðagreiðslan var boðuð fyrr á þessu ári af Danielle Smith forsætisráðherra Alberta eftir að grasrótarhópur safnaði um 300 þúsund undirskriftum þar sem skorað var á stjórnvöld fylkisins að halda bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Kanada.