Helen Haines, 65 ára gömul áströlsk þingkona, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi þar sem hún þurfti að undirgangast aðgerð eftir að ekið var á hana í gær.Ástralskir miðlar herma að nauðsynlegt hafi reynst að aflima annan fótlegg Haines í aðgerðinni. Hún er enn þá í lífshættu. KLEMMDIST Á MILLI TVEGGJA BÍLA Haines var að sækja vörur úr skottinu á bíl fyrir utan skrifstofu sína í bænum Wangarattam um 200 kílómetra norðaustur af Melbourne þegar Toyota Land Cruiser var ekið á hana.Sjónarvottar segjast hafa heyrt hvell og síðan séð konu klemmda á milli tveggja bíla. Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu hefur staðfest að ökumaðurinn hafi viljandi stefnt bíl sínum á Haines, en hann tók U-beygju til að snúa til baka þangað sem hún stóð.Ökumaðurinn var fjörutíu og þriggja ára gamall karlmaðu