Stjórnvöld í Japan harma að erindrekar þeirra fái ekki leyfi til að heimsækja japanskan blaðamann sem er í haldi í Rússlandi.Blaðamaðurinn var handtekinn vegna gruns um njósnir á eyjunni Sakhalin fyrir viku, en eyjan er við austurströnd Rússlands, rétt norðan við Japan. Samkvæmt rússneskum fjölmiðlum verður maðurinn í gæsluvarðhaldi til 12. desember.Japönsk stjórnvöld hafna því að blaðamaðurinn hafi verið að stunda njósnir og krefjast þess að hann verði leystur úr haldi. Þá segja þau Rússland brjóta gegn samkomulagi sem er í gildi á milli landanna og tryggir aðgang ræðismanna að ríkisborgurum sem eru í haldi innan fjögurra daga frá handtöku.Í ágúst heimsótti Vladímír Pútín Rússlandsforseti skip rússneska flotans við Sakhalin.EPA / GAVRIIL GRIGOROV KREMLIN / POOL