Stuðningur við Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur hríðfallið og mælist nú 31%, sem er það lægsta í hans stjórnartíð.. Reuters greinir frá.Minnkandi stuðningur er Repúblikönum áhyggjuefni í aðdraganda þingkosninga í Bandaríkjunum en stjórnmálaskýrendur telja kjósendur meðal annars vera að refsa flokknum fyrir hátt olíuverð sem hefur komið illa niður á bandarískum kjósendum.68% þeirra segjast óánægðir með það hvernig Trump hefur tekist til í efnahagsmálum en athygli vekur að meðal repúblikana segjast 37% óánægðir.Þá eru 50% kvenna ánægðar með demókrata en aðeins 32% þeirra segjast jákvæðari gagnvart repúblikönum.EPA / JIM LO SCALZO