Þingkona sögð hafa misst annan fótlegginn eftir árás

Helen Haines, 65 ára gömul áströlsk þingkona, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi þar sem hún þurfti að undirgangast aðgerð eftir að ekið var á hana í gær.Ástralskir miðlar herma að nauðsynlegt hafi reynst að aflima annan fótlegg Haines í aðgerðinni. Hún er enn þá í lífshættu. KLEMMDIST Á MILLI TVEGGJA BÍLA Haines var að sækja vörur úr skottinu á bíl fyrir utan skrifstofu sína í bænum Wangarattam um 200 kílómetra norðaustur af Melbourne þegar Toyota Land Cruiser var ekið á hana.Sjónarvottar segjast hafa heyrt hvell og síðan séð konu fasta á milli tveggja bíla. Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu hefur staðfest að ökumaðurinn hafi viljandi stefnt bíl sínum á Haines, en hann tók U-beygju til að snúa til baka þangað sem hún stóð.Ökumaðurinn var fjörutíu og þriggja ára gamall karlmaður
Þingkona sögð hafa misst annan fótlegginn eftir árás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd