Paul Mackenzie stýrði dómsdagstrúarsöfnuðinum Alþjóðleg kirkja góðra frétta (e. Good News International Church). Söfnuðurinn var til húsa á búgarði Mackenzie í Shakola í Kenía þar sem hann prédikaði um enda heimsins og hvatti fylgjendur sína til að svelta sig í hel.Mackenzie boðaði það sem hann kallaði „skipulagt stigveldi dauðans“, en samkvæmt því áttu börn að deyja fyrst, svo unglingar, þá konur og síðast karlmenn.Þá lýsti prédikarinn því einnig yfir að menntun væri af hinu illa, að heilbrigðisþjónusta stríddi gegn kennisetningum trúarinnar og að persónuskilríki væru merki djöfulsins. Hann sendi ræður sínar út í gegnum sjónvarpsstöð sem kirkja hans rak BÖRNUM NEITAÐ UM MAT Eftir að Mackenzie var handtekinn ásamt 28 vitorðsmönnum árið 2023 uppgötvaði keníska lögreglan hundruð fjöldagra