Helen Haines, 65 ára gömul áströlsk þingkona, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi þar sem hún þurfti að undirgangast aðgerð eftir að ekið var á hana í gær.Haines var að sækja vörur úr skottinu á bíl fyrir utan skrifstofu sína í bænum Wangarattam um 200 kílómetra norðaustur af Melbourne þegar Toyota Land Cruiser var ekið á hana.Sjónarvottar segjast hafa heyrt hvell og síðan séð konu fasta á milli tveggja bíla. Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu hefur staðfest að ökumaðurinn hafi viljandi stefnt bíl sínum á Haines, en hann tók U-beygju til að snúa til baka þangað sem hún stóð.Ökumaðurinn var fjörutíu og þriggja ára gamall karlmaður en eftir að hann var handtekinn fann lögregla hníf í bíl hans. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir. SEGIR PÓLITÍSKA ORÐRÆÐU STEFNA Í RANGA ÁTT Helen Hai