14 námuverkamenn eru látnir og sjö særðir í Kólumbíu eftir að skriða féll yfir ólöglega gullnámu.Björgunaraðgerðir í ólöglegri gullnámu í Kólumbíu árið 2021. 11 námuverkamenn létust í slysinu og einn komst lífs af.EPA / JOHN JAIRO BONILLASkriðan féll í héraðinu Nariño sem á landamæri að Ekvador en þar er mikið um ólöglegar námur. Vopnaðar sveitir stjórna þar viðskiptum með gull og eiturlyf en það, ásamt því hvað svæðið er erfitt yfirferðar, hamlaði för viðbragðsaðila að slysstaðnum. Síðustu fréttir herma að leit að eftirlifendum hafi verið hætt.Námuslys eru tíð í Kólumbíu, ekki síst á eftirlitslausum svæðum.