Christiane Amanpour hættir á CNN eftir 43 ára starf

Christiane Amanpour, aðalfréttaþulur CNN á alþjóðavettvangi, tilkynnti í dag að hún muni hætta hjá fréttastöðinni í júní á næsta ári. Amanpour hefur starfað hjá CNN í 43 ár og er meðal virtustu og verðlaunuðustu fréttamanna stöðvarinnar.„Eftir margra mánaða umhugsun og nokkrar svefnlausar nætur hef ég ákveðið að skilja leiðir við CNN, samstarfsaðila minn í 43 frábær ár,“ sagði Amanpour í yfirlýsingu.Amanpour hóf störf hjá CNN árið 1983, þá 25 ára, sem aðstoðarmaður á alþjóðafréttadeildinni. Hún vakti heimsathygli með umfjöllun sinni um Persaflóastríðið og hefur síðan fjallað um átök meðal annars í Bosníu, Rúanda, Afganistan og Úkraínu.Frétta- og viðtalsþáttur hennar, Amanpour, hóf göngu sína á CNN árið 2009. Í janúar 2025 fækkaði hún fjölda þáttanna frá daglegum yfir í nokkra daga í viku o
Christiane Amanpour hættir á CNN eftir 43 ára starf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd