Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa.