Tvenn ungmenni, þolandi og gerandi, hafa að sögn Kristínar Skjaldardóttur, félagsráðgjafa og sérfræðings í uppbyggilegri réttvísi, fengið nýtt tækifæri í lífinu eftir að hafa farið í gegnum sáttaferli hér á landi.Kristín segir að yfirleitt séu það þolendur eða aðstandendur þeirra sem óski eftir slíku ferli, frekar en gerendur.Uppbyggileg réttvísi felur í sér að þolendur og gerendur fá tækifæri til að eiga samskipti, þar sem áhersla er lögð á að gerandinn axli ábyrgð á brotinu og þolandinn fái tækifæri til að vinna úr afleiðingum þess.Í Kastljósi kvöldsins var fjallað um sögu Davids Hodgkinson, sem hefur náð sáttum við Jacob Dunne, manninn sem varð syni hans ,James, að bana með höfuðhöggi í slagsmálum.Dunne afplánaði fangelsisdóm fyrir verknaðinn en hitti síðar foreldra James í sáttaferli,