Í síðustu viku var greint frá því að Litli spítalinn ehf. hafi tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Ætlunin er að reka margþætta heilbrigðisþjónustu. Þar á meðal er svokölluð smáslysamóttaka, millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar.Alma Möller heilbrigðisráðherra var meðal gesta í Silfrinu í kvöld þar sem heilbrigðismál voru til umfjöllunar og hugmyndir um Litla spítalann voru meðal annars ræddar.„Það er búið að taka á þessu snúning núna tvisvar, árið 2022 og 2024. Þá var ekki mælt með að koma slíkri þjónustu á fót. Vandi bráðamóttökunnar er ekki þessi. Það hefur tekist ágætlega að sinna þessum smáslysum og þau eru aðskilin frá þyngri verkefnum bráðamóttökunnar. Þetta er gott dæmi um það að það er ekki verið að lækna rétt me