Íbúar í Alberta-fylki greiða atkvæði í um hvort það eigi að vera áfram hluti af Kanada. Þótt búist sé við að meirihluti vilji vera það áfram hefur umræðan skapað spennu í samfélaginu og jafnvel innan fjölskyldna.Feðgarnir Tyson Pietsch og Gustav Pietsch eru ósammála en láta það ekki hafa áhrif á fjölskyldunar. Faðirinn Tyson vill fá bindandi atkvæðagreiðslu um sjálfstæði á meðan sonurinn Gustav vill að Alberta verði áfram hluti af Kanada.„Ég hef áhyggjur af því hvernig sjálfstæð Alberta yrði fyrir mig, hinsegin manneskju sem vill stofna fjölskyldu með kærastanum mínum síðar meir,“ segir Gustav.„Ég tel þessar áhyggjur ástæðulausar. Ef honum líður ekki vel í sjálfstæðu Alberta-ríki getur hann flutt til Saskatchewan eða Bresku-Kólumbíu og ég heimsæki hann,“ segir Tyson.Alberta er eitt tíu fyl