Mótmælin í Frakklandi, sem hófust meðal framhaldsskólanema um miðjan september, minna um margt á óeirðirnar árið 1968. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.„Í sjálfu sér minna þau að mörgu leyti á óeirðirnar 1968. Þær byrja sem stúdentaóeirðir, þessi byrja sem menntaskólaóeirðir, en síðan breiðist þetta út og verður meira að almennum mótmælum sem tengjast síðan aftur verkalýðshreyfingum,“ segir Guðmundur.Guðmundur segir að greina þurfi á milli mótmælanna sjálfra og þeirra skemmdarverka sem fylgt hafa í framhaldinu. Hann bendir á að framhaldsskólanemar hafi upphaflega mótmælt slæmum aðstæðum í skólum vegna niðurskurðar ríkisins og að verkalýðshreyfingin hafi síðar bæst í hópinn vegna versnandi lífskjara.Franska ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í