Styrkir til kaupa á rafknúnum fólksbílum lækka um 100 þúsund krónur um næstu mánaðamót, úr 500 í 400 þúsund, samkvæmt reglugerð sem umhverfisráðherra undirritaði í síðustu viku. Samhliða þessu lækkar hámarksverð styrkhæfra bíla um tvær milljónir, úr tíu milljónum í átta.Björn Víglundsson framkvæmdastjóri sölusviðs hjá bílaumboði Heklu segist búast við aukinni sölu á næstu dögum áður en breytingarnar taka gildi. Margar fyrirspurnir hafi borist eftir að breytingarnar voru kynntar í síðustu viku.„Það verður meiri sala næstu tvær vikurnar svo eitthvað aðeins minna næstu tvær vikurnar þar á eftir en síðan jafnar þetta sig til lengri tíma litið,“ segir Björn.Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir að þrátt fyrir að stjórnvöld hafi boðað breytingar á kerfinu hafi tíma