Um 3000 hjartastuðtæki eru víðs vegar um landið. Heilbrigðisráðuneytið hefur hrundið af stað verkefni að skrásetja öll tækin. Þorbjörg Katrín Davíðsdóttir stýrir verkefninu fyrir heilbrigðisráðuneytið en hún vinnur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hver er tilgangur verkefnisins?„Þannig þegar að einhver lendir í hjartastoppi og einhver hringir í Neyðarlínuna þannig að Neyðarlínan geti séð hvort að það sé tæki staðsett nálægt þeim,“ segir Þorbjörg.Landsmenn eru oft óöruggir að nota slík tæki en Jón Gudmund Knutsen, leiðbeinandi hjá mennta- og vísindadeild SAk, segir að hver sem er eigi að geta notað tækin enda tali þau við notendur á íslensku.„Staðreyndin er sú að það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu. Þetta eru sjálfvirk tæki af því leytinu til. Maður getur ekki fengið stuð nema að sé að