Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir hæstarétt geta sett fordæmi í málinu.Landsréttur sneri við dómi héraðsdóms og sýknaði mann af ákæru um nauðgun. Dómurinn klofnaði í málinu en meirihluti dómara komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði ekki gerst sekur um nauðgun því konan hefði gefið samþykki fyrir harkalegu kynlífi.Konan hlaut margvíslega áverka eftir manninn: hún rifbeinsbrotnaði, tapaði heyrn og tognaði á hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. BDSM-samtökin eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt niðurstöðu Landsréttar.María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir mikla þróun hafa orðið á skilningi á hugtakinu samþykki á síðustu árum.„Ég held að