Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða í landinu. Sviðsstjóri almannavarnadeildar á Íslandi segir slíkt fyrirkomulag ekki hafa verið rætt hér heima en útilokar það ekki.Ikea tekur þátt í viðbúnaðaráætlun atvinnulífsins í Danmörku. Fjöldi fyrirtækja sem tekur þátt hefur meira en þrefaldast síðan í desember, úr 63 fyrirtækjum í 223.Torben Mortensen, öryggisstjóri IKEA í Danmörku segir Ikea auðveldlega geta séð yfir tvö þúsund manns fyrir mat á einum degi. Nóg sé af mat í veitingahúsum verslananna og svefnherbergisdeildina væri hægt að nýta undir gistingu.Þá hefur Ikea einnig yfir að ráða varaafli og getur því brugðist við rafmagnsleysi. Það yrði þó ekki nema í ítrustu neyðartilviku