Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byrjun mánaðar en lögregla handtók í fyrstu fjóra og leitaði þess fimmta.Sævar Stefánsson lögreglufulltrúi segir málið enn til rannsóknar. Búið sé að taka skýrslu af öllum hinum grunuðu og til standi að taka fleiri skýrslur af brotaþola. Hann segir lögreglu komna með þokkalega mynd af atburðarás kvöldsins en að enn sé verið að skoða gögn málsins.Áður hefur komið fram að hin grunuðu eru fjórir karlmenn og ein kona á þrítugs-, fertugs-, og fimmtugsaldri. Bæði brotaþoli og hin grunuðu eru Íslendingar. Árásin átti sér stað fyrir utan heimahús og lögregla telur að barefli hafi verið beitt.