Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt hér á landi.Hópur þeirra lagði niður störf um miðjan september þegar laun þeirra voru lækkuð um allt að 40 prósent án skýringa, að þeirra sögn.Forsvarsmenn Wolt boðuðu sendlana á sinn fund þar sem þeim var tjáð að tæknileg vandamál væru ástæða launalækkunarinnar.Sendlarnir funduðu í húsnæði Eflingar í dag. SEGJA EKKERT HAFA BREYST FRÁ FUNDI MEÐ FORSVARSMÖNNUM WOLT Gheorghe Mihai Cacaliceanu er talsmaður sendla Wolt á Íslandi.Hann segir að hópur sendla hafi fundað með forsvarsmönnum Wolt á Íslandi 24.september.Gheorghe segir niðurstöðu fundarins hafa verið að kjör sendla yrðu rétt við á næstu fjórum til sex vikum en það hafi ekki staðist.Hann segir sendla enn fá sömu lágu launin og þess vegna hafi verið ákveðið að boða til fundar í húsnæði Eflingar