Lögreglan í Kaupmannahöfn greindi frá því í dag að rannsókn sé hafin vegna ásakana tveggja fréttaljósmyndara sem segjast hafa orðið fyrir árásum lögreglumanna við störf sín á mótmælum gegn innflytjendum nú um helgina. Ljósmyndari danska dagblaðsins Ekstra Bladet segir lögreglumann hafa slegið sig með kylfu þegar hann fylgdist með mótmælum í dönsku höfuðborginni. Mótmælendur kröfðust þess að innflytjendur yrðu sendir...