Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann um þrítugt til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir innflutning á fíkniefninu kratom. Dómarinn féllst ekki á málsvörn mannsins um að hann hefði ekki vitað að efnið væri ólöglegt.Maðurinn þarf ekki að sitja inni, haldi hann skilorð næstu þrjá mánuði, en var gert að greiða tæpar fimm hundruð þúsund krónur í máls- og sakarkostnað.Eins gerði lögregla upptæk þau tæpu tvö kíló af kratom eða mítragýnin sem maðurinn hafði flutt inn frá heimalandi sínu, Tékklandi.Efnið kratom er lítt þekkt hérlendis en hefur þó nokkrum sinnum komið inn á borð Tollsins. Lögreglan á Norðurlandi eystra varaði við efninu fyrr á árinu, eftir að hald var lagt á tæp 60 kíló í tveimur aðskildum málum.Efnið er unnið úr laufum suður-asísku plöntunnar Mytragina specios
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd