Tvö herskip bandaríska sjóhersins eru í Jökulfjörðum fyrir vestan: skipin Hos Red Rock og Hos Red Dawn.Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa þau leyfi stjórnvalda til hafnarkomu og til að sækja þjónustu hingað til lands.Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir að skipin starfi utan íslenskrar efnahagslögsögu og af þeim sökum sé þess ekki krafist að þau hafi rannsóknarleyfi eða upplýsi nánar um verkefni sín.Á meðan þau eru í íslenskri landhelgi sé þeim skylt að vera í samskiptum við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.