Annar boðar kærleika og sátt, hinn átök og íhaldssemi. Demókratinn James Talarico og repúblikaninn Ken Paxton vísa báðir til kristinnar trúar í harðri kosningabaráttu um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. Úrslitin í Texas gætu ráðið miklu um hvor flokkurinn nær yfirráðum á Bandaríkjaþingi. James Talarico, 37 ára fyrrverandi kennari sem stefnir að því að verða prestur í öldungakirkjunni, er frambjóðandi Demókrataflokksins....