Svör Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýtt einkunnakerfi grunnskólanna vöktu óánægju á Alþingi í dag og sættu síðar gagnrýni þingmanna. Hörð orðaskipti urðu milli ráðherrans og Ingibjargar Isaksen, þingmanns Framsóknarflokksins, sem sagðist engu nær eftir svör Ingu. Ráðherrann svaraði að það væri ekki á hennar valdi að „afrugla“ þingmanninn.