Mannskæð drónaárás nærri markaði

Að minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þar var fjöldi fólks sem var á leið heim til sín.Árásin er ein sú mannskæðasta síðan stríð braust út á milli súdanska hersins og RSF-uppreisnarhersins í Súdan. Vestur-Kordofan er undir stjórn RSF sem hefur ásakað súdanska herinn fyrir að bera ábyrgð á árásinni. Enn hefur þó enginn lýst yfir ábyrgð á henni.Þá var gerð önnur drónaárás í Al-Mujilad og særðust fjórir í þeirri árás.Hjálparstarfsmenn telja að yfir 200.000 hafi verið drepnir í stríðinu í Súdan en engar staðfestar upplýsingar liggja fyrir um mannfall.Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn hafa í auknum mæli notað dróna í árásum sínum undanfarið sem hafa valdið miklu mannfalli.St
Mannskæð drónaárás nærri markaði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd