Skjálfti af stærðinni 5,2 varð í Bárðarbungu klukkan korter í þrjú. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt, flestir minni en 2 að stærð. Nokkrir skjálftar hafa orðið í Bárðarbungu í morgun, stærstur 3 að stærð.Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að síðast hafi orðið skjálfti af þessari stærðargráðu 5. október, 4,7 að stærð. Þar áður var skjálfti 5,2 að stærð 28. júlí.„Skjálftar sem þessir hafa mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. Engin merki eru um gosóróa.“Fréttin hefur verið uppfærð.