Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stýrði umferð vegna bráðra sjúkraflutninga af Suðurlandi. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann segir aðstoðarbeiðni hafa borist í gegnum fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra.Nokkur bifhjól lögreglu hafi brugðist við beiðninni með því að liðka fyrir umferð þar sem þörf var á til að koma sjúkrabílnum hratt og örugglega á Landspítalann í Fossvogi.Lögreglan á Suðurlandi segir flutningana vera vegna bráðra veikinda.Fréttastofu bárust nokkrar ábendingar um að lögregla væri að stýra umferð á höfuðborgarsvæðinu og að einhverjar tafir hefðu orðið vegna þessa.
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd