Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts

Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í morgun að hætta þurfi mánaðarlegum stuðningi við hálfa milljón íbúa á Gaza vegna fjárskorts. Shaun Hughes, hjá Matvælahjálpinni, segir að þörf fyrir aðstoð hafi aftur á móti ekki dregist saman. Fjárveiting til verkefnisins dugi ekki til að veita tilhlýðilega aðstoð.Rúmlega ein milljón íbúa, um helmingur íbúa á Gaza, fái þó áfram annaðhvort matar- eða fjárhagsaðstoð mánaðarlega en hún verði minni í sniðum. Hughes segir að íbúar Gaza séu ekki öruggir. Loftárásir séu daglegt brauð og fólk haldi áfram að flýja heimili sín. Nær allir séu án varanlegs húsnæðis og búi við skelfilegar aðstæður.
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd