Fjármála- og efnahagsráðherra segir að uppsögn Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar hafi verið almenns eðlis um áherslur í stjórnunum. Hann sagði engu við að bæta við skýringar stjórnar fyrirtækisins.Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi. Hörður sagði upp störfum í byrjun mánaðar og hefur ekki tjáð sig um ástæður uppsagnarinnar en Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, hefur staðfest að ágreiningur hafi verið milli Harðar og stjórnar um áherslur í rekstri fyrirtækisins.„Ég vil vekja athygli á því að þetta er ekki einkamál Viðreisnar. Þetta er Landsvirkjun,“ sagði Guðlaugur Þór hissa á afstöðu ráðherrans í fyrra svari og ítrekaði spurningu sína um hvers vegna Hö