Hafnar því að dregið hafi úr upplýsingagjöf til Úkraínumanna

Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að engar viðvaranir hafi borist frá bandamönnum um eldflauga- og drónaárásir sem Rússar gerðu í nótt. Þeir hafi skotið 16 eldflaugum og yfir 200 drónum í nokkrum bylgjum.Rússar segjast hafa gert viðamiklar árásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt, meðal annars á hernaðarinnviði, vopnageymslur fyrir flugskeyti og dróna og gagnaver. Kyiv Independent segir að einn hafi verið drepinn og átta særðir í árásum í gær.Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem er í Samarkand í Úsbekistan, neitaði því í morgun að dregið hefði verið úr upplýsingagjöf Bandaríkjamanna til Úkraínu um loftárásir síðustu þrjá daga. Spurður hvort svo hefði verið í gær sagðist hann ekki vita það en hugbúnaðarvandamál fyrir nokkrum dögum hefði haft áhrif á viðvaranir.The Guard
Hafnar því að dregið hafi úr upplýsingagjöf til Úkraínumanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd