Bólusetningar frestast

Tafir hafa orðið á afhendingu bóluefnis við inflúensu. Þær tafir verða til þess að bólusetning hefst ekki á morgun eins og stefnt hafði verið að. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.Hefja átti bólusetningu fólks í forgangshópum á morgun. Nú er ljóst að það frestast um einhverja daga. Vonir standa til að hægt verði að hefjast handa fyrir lok mánaðarins. Í framhaldi hefst almenn bólusetning. Tveggja til fjögurra ára börnum stendur til boða bólusetning með nefúða fyrstu vikuna í nóvember.
Bólusetningar frestast

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd