Ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu skref við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, tíu mánuðum eftir að aðgerðahópur skilaði tillögum sínum. Hópurinn lagði til að viðræðum ríkis og sveitarfélaga lyki í maí og frumvarp um lögbundna ábyrgð sveitarfélaga á leikskólarekstri kæmi fram í haust.