Áströlsk þingkona slasaðist alvarlega þegar jeppa var ekið á hana

Helen Haines, áströlsk þingkona, slasaðist alvarlega þegar jeppi keyrði á hana fyrir utan skrifstofu hennar í Viktoríu-fylki í dag. Forsætisráðherra landsins segir árásina viljaverk og leiðtogar annarra flokka hafa fordæmt árásina. FUNDU HNÍF Í BÍL ÁRÁSARMANNSINS Haines er óháður þingmaður. Lögregla segir að keyrt hafi verið á hana á Toyota Landcruiser jeppa fyrir utan kjödæmisskrifstofu hennar í Wangaratta í Viktoríu-fylki klukkan hálf fjögur síðdegis að staðartíma.43 ára karlmaður var handtekinn á vettvangi. Lögregla segir að hnífur hafi fundist í bíl hans. Ástralska alríkislögreglan rannsakar meðal annars hvort þetta var viljaverk. Lögregla telur að almenningur sé ekki í hættu. ÁRÁSIN VILJAVERK Anthony Albanese, forsætisráðherra, sagði árásina hafa verið viljaverk en ástæðan sé ók
Áströlsk þingkona slasaðist alvarlega þegar jeppa var ekið á hana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd