Fær umboðið en dreymir ekki um stól forsætisráðherra

Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, fól Elisabeth Thand Rinqvist, formanni Miðjuflokksins, að reyna að mynda ríkisstjórn með þátttöku flokka af hægri- og vinstrivæng sænskra stjórnmála. Ekki hefur tekist að mynda nýja ríkisstjórn á þeim rúmlega mánuði sem liðinn er síðan Svíar gengu að kjörborðinu. Ríkisstjórnin sem var við völd á síðasta kjörtímabili missti meirihluta sinn. Vinstri- og miðjuflokkarnir hlutu meirihluta en náðu ekki samkomulagi um myndun ríkisstjórnar.Elisabeth Thand Rinqvist sagði í viðtali við sænska sjónvarpið, SVT, í dag að meginmarkmið sitt væri að leggja sitt af mörkum til að greiða fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar. Hún sagði markmið sitt ekki vera það að verða forsætisráðherra. Fram undan eru viðræður hennar við formenn allra flokka á þingi. Rinqvist sagði í vi
Fær umboðið en dreymir ekki um stól forsætisráðherra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd