Stjórn BDSM á Íslandi fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýlegu nauðgunarmáli þar sem maður var sýknaður með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi. Samtökin segja forkastanlegt að BDSM sé notað til að réttlæta alvarlegt ofbeldi og líkamstjón.