Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á sölu Landsvirkjunar vegna orkutapa Landsnets var gölluð því markaðir höfðu ekki verið skilgreindir sem skyldi. Þess vegna ákvað áfrýjunarnefnd samkeppnismála að fella úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem eftirlitsstofnunin lagði á fyrirtækið.Áfrýjunarnefndin kvað úrskurð sinn upp í dag. Hún felldi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi og vísaði henni aftur til eftirlitsins til nýrrar rannsóknar og ákvörðunar.Til skoðunar voru viðskipti Landsvirkjunar og Landsnets 2017–2021. Nokkrir annmarkar þóttu á rannsókninni sem urðu til þess að áfrýjunarnefndin taldi málið ekki fyllilega upplýst. Úrskurðarnefndin sagði að hver og einn annmarkanna væri verulegur. Í yfirlýsingu Landsvirkjunar um úrskurðinn segir að með honum sé staðfest að ekki hafi staðið steinn yf