Farþegar sem spila háværa tónlist í strætisvögnum á Englandi gætu átt á hættu á að vera sektaðir. Stjórnvöld ætla að taka harðar á óæskilegri og truflandi hegðun í almenningssamgöngum.Sektin nemur allt að 100 pundum, jafnvirði rúmlega 16 þúsund króna. Aðgerðir stjórnvalda miða einnig að því að taka á öðrum hlutum eins og að skilja eftir rusl á víð og dreif, veipa og sýna ógnandi hegðun. Sveitarfélög fá nýjar heimildir til að sekta þá sem gætu verið brotlegir í strætisvögnum.Stjórnvöld eru einnig að setja á koppinn landsátak sem hvetur farþega í lestum til að „deila vagninum, ekki hávaðanum,“ eins og það er orðað.Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, sagði alla kannast við að vera í lestum þegar einhver byrjar að spila tónlist eða myndbönd úr símanum á hæsta styrk. „Það getur farið veru