Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja dómi Landsréttar frá í síðustu viku þar sem karlmaður á fertugsaldri var sýknaður af nauðgun, samkvæmt svari við fyrirspurn fréttastofu.Maðurinn var sakfelldur og dæmdur í fimm ára fangelsi þegar réttað var yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í október í fyrra. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 2,5 milljónir í bætur.Landsréttur sneri dómnum við þar sem tveir af þremur dómurum töldu ósannað að maðurinn hefði brotið á konunni, en fram kom að þau hafi komið sér saman um harkalegt kynlíf. Hún hefði einu sinni notað öryggisorð og maðurinn brugðist við því.Samkvæmt ákæru hlaut konan margs konar áverka eftir atvikið, meðal annars rifbeinsbrot, heyrnartap og tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind.Einn dómari skilaði sératkvæði og vildi sakfella manninn.